ÞJÓNUSTA - Eldfell Innovation ApS

Skoða innihald
Aðal starfsemi
Ráðgjöf, innleiðing UT lausna, sjálfvirknivæðing og útvistun vinnuferla, grafísk vinnsla og umbrot, bókhaldsþjónusta og uppgjör

Ráðgjöf, Innleiðing og Útvistunar lausnir fyrir hótel

Í framtíðinni munu hóteleigendur einblína á kjarnastarfsemi hótela.  Að hjálpa gestum að njóta dvalarinnar og útvista bókunum, næturvöktun og öryggisþjónustu, þrif, bókhaldi, markaðssetningu og upplýsingatækniþjónustu til þeirra sem eru sérhæfðari á einstökum sviðum.  

Upplýsingatækni getur hjálpað ferða og gistiþjónustu að fjarlægja dýra vinnuferla, sem unnir eru af starfsmönnum og hægt er að sjálfvirknivæða með tæknibúnaði.  Þetta hjálpar til með að lækka launakostnað, en hjálpar einnig við að halda uppi þjónustustigi.

Eldfell Innovation ApS aðstoðar við þarfagreiningu verk- og kerfisferla hótela og gististaða.
Bókunarferli geta verið kostnaðarsöm fyrir hótel og gististaði.  Hvað kostar hver bókun, frá því að hún er stofnuð á bókunarsíðu þar til gestur hefur verið skráður út?
Í bókunarferlinu geta legið of mörg mannleg handtök eða of mikill kostnaður kerfisferla.  Nauðsynlegt er að hafa yfirsýn yfir þessa kostnaðarþætti og hvernig hægt er að ná meiri framlegð út úr bókunum.
Bókunarkerfi geta verið æði misjöfn og mis kostnaðarsöm.  Því geta legið töluverðir hagsmunir í of kostnaðarsömu bókunarferli.

Eldfell Innovation ApS aðstoðar Hótel og gististaði m.a. við að:
Innleiða og setja upp bókunar og bókhaldskerfi
Innleiða sjálfvirknivæðingu verkferla s.s. sjálfsafgreiðslu við inn og útskráningu, upplýsingastjórnun og sölu ýmissa ferða og viðburða.
Þjónusta og aðstoða við lausn ýmissa vandamála sem geta komið upp í verk eða kerfisferlum og greina vandamálin hvort þau séu mannlegs eða kerfislegs eðlis, svo hægt sé að finna skjóta lausn á þeim.
Greina og bjóða út verkferla, sem hægt er að útvista s.s. þrif, næturvörslu, bókunarþjónustu, bókhald, fjárstýringu o.fl.
Kostnaðarmeta innleiðingu nýrra kerfa.

Eldfell Innovation einblínir á hag gististaða og er því ekki háð neinum einum hugbúnaði, heldur vinnur út frá heildarlausn til að ná hámarks framlegð og hagnaði fyrir hótel og gististaði.
Eldfell Innovation vinnur bæði með þeim hugbúnaði sem þegar er til staðar og nýjum hugbúnaði, og metur þær lausnir sem eru hagkvæmastar hverju sinni, hvort sem það er heildar- eða viðbótalausnir.
Næturvakt og öryggisþjónusta
Vöktun öryggismyndavéla  
Símsvörun á lokunartíma
Lausn vandamála ef erindið er mikilvægt, annars vísað á opnunartíma hótels
Næturvakt og öryggisþjónusta ->
Bókanir, verð og sölurásir
Vöktun tölvupósta og svar-þjónusta
Frágangur bókana í bókunarkerfi
Eftirfylgni fyrirspurna og bókana
Bókun ferða og viðburða þjónusta
Dagleg verðstýring
Fínstilling sölurása til að hámarka sölu
Innleiðing nýrra sölurása
  Bókanir, verð og sölurásir ->   
Markaðsþjónusta
Ráðgjöf og innleiðing markaðsstefnu
Öflun tengsla við ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur
 <- Markaðsþjónusta   
Rekstrarþjónusta
Stjórnun
Innheimta
Bókhald og uppgjör
Fjárstýring og arðsemisgreiningar
Upplýsingatækni og samskipti
Sjálfvirknivæðing vinnuferla
 <- Rekstrarþjónusta   
Eiginleikar og tækifæri þjónustuferla
      • Það eru miklir möguleikar í samþættingu næturvaktar og hótel bókunarþjónustu á komandi árum.
      • Eftirspurn eftir betri og fljótari gistiþjónustu eykst með aukinni tækni.
      • Aukin eftirspurn eftir aðgengi að upplýsingum, sjálfvirknivæðingu og fljótari þjónustu er að verða mikilvægustu þættir ferðaþjónustu.
      • Hótelrekstur hefur lítið breyst á síðustu áratugum, en skrefunum fram á við fjölgar eftir því sem eftirspurn eftir ávöxtun á fjárfestingu eykst og fjárfestar vilja sjá ávöxtun gerast mun hraðar en fyrr.
      • Næturvarsla hefur oft verið hugsuð sem nauðsynleg viðvera, ef eitthvað kæmi upp á.  Með miðlægri vaktstöð og nútíma tæknibúnaði, er mögulegt að stjórna fleiri hótelum með lægri kostnaði.
      • Bókunarþjónusta er ný  nálgun til að bjóða upp á þjónustu með því að nota bókunarkerfi, bókunarsíður og bókunarrásir til að svara spurningum gesta, varðandi framboð og þjónustu.

Eldfell Innovation IVS.
Grundtvigs Alle 29
6400 Sønderborg
Denmark

Tel.: +45 60842037
Aftur í innihald